💰BESTU DÍLARNIR Í OKTÓBER:💰
Það er úr nógu að velja þegar maður leitar að netspilavíti. Það er okkar hlutverk að aðstoða íslenska spilara, með því að fara vendilega í gegnum það sem í boði er. Sum spilavíti ætti hreinlega að varast, þau geta hafa orðið uppvís að því að standa ekki við sitt og þá er best að sneiða alveg hjá viðskiptum. Samkeppni á markaði með spilavíti á netinu og fjárhættuspil almennt er mikil. Þess vegna er hægt að fá allskonar bónusa við skráningu og hreinlega spila frítt – hver vill ekki geta unnið sér inn beinharða peninga án nokkurrar áhættu! Spilavíti.is er þín gátt inn í þennan heim og vísar veginn með ítarlegum samanburði og áreiðanlegum upplýsingum.
Eru spilavíti á Íslandi? Staðan á íslenskum peningaspila- og veðmálamarkaði
Peningaspil og þar með talin spilavíti hafa verið bönnuð á Íslandi síðan 1926, þegar fyrstu lögin um happdrætti og hlutaveltur voru sett. Tilgangur þeirra var að lögfesta venjur í happdrættismálum og koma í veg fyrir að Íslendingar spiluðu í erlendum happdrættum.
HHÍ, stofnað 1933, rekur um 500 spilakassa undir merkjum Gullnámunnar og Gullregns í 27 spilasölum. Árið 1987 hóf HHÍ sölu á skafmiðum og 1993 byrjaði rekstur skjávélahappdrættis.
Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna (skammstafað D.A.S.) er lögbundið happdrætti á Íslandi. Það var stofnað með lögum nr. 16/1973 og hefur heimild til að reka happdrætti um ýmsa vinninga, þar á meðal bifreiðar, bifhjól, báta, búnaðarvélar, íbúðarhús, einstakar íbúðir, húsbúnað og hljóðfæri
Rauði krossinn (RKI) fékk fyrst leyfi til reksturs spilakassa árið 1972, svonefndra tíkallakassa. Árið 1983 rak félagið 150 spilakassa, þar af 20 tíkallakassa og 130 ávaxtakassa, sem skiluðu 90% af heildartekjum félagsins.
Íslandsspil var stofnað í lok árs 1994 með lögum nr. 73/1994 um söfnunarkassa. Samkvæmt reglugerð nr. 320/2008 má fyrirtækið reka allt að 650 söfnunarkassa. Í dag rekur Íslandsspil 390 kassa á 75 stöðum, í eigu Rauða krossins (68,75%) og Landsbjargar (31,25%).
Heildarumfang íslenska peningaspilamarkaðarins nam um 20 milljörðum króna árið 2023, þar af fór rúmlega helmingur í gegnum erlend netfyrirtæki. Á markaði spilakassa er hlutdeild HHÍ 64% en Íslandsspila 36%.
Íslendingar eru í öðru sæti í Evrópu í peningaspilum, á eftir Írum. Meðal-Íslendingur ver um 80.000 krónum árlega í veðmál og fjárhættuspil. Ísland er nú eitt af fáum Evrópulöndum sem enn heldur í sérleyfakerfi fremur en að taka upp almenn starfsleyfi fyrir veðmálastarfsemi. Þetta er í andstöðu við þróunina í Evrópu, þar sem 27 af 31 löndum hafa tekið upp fjölleyfakerfi og 23 lönd hafa innleitt slíkt kerfi fyrir allar tegundir netveðmála.
Afleiðing þessa er sú að Ísland er með lægsta hlutfall spilatekna hjá innlendum leyfishöfum meðal Evrópuríkja þegar kemur að netveðmálum, aðeins 20%. Flest önnur Evrópuríki hafa brugðist við með því að taka upp starfsleyfi í stað sérleyfa og banna, sem hefur leitt til þess að hærra hlutfall veðmálastarfsemi fer fram innan landamæra þeirra ríkja.
Spilavíti á netinu fyrir Íslendinga
Þó að hefðbundin spilavíti séu bönnuð á Íslandi, spila sífellt fleiri Íslendingar í erlendum spilavítum á netinu. Erlendu netspilavítin laða að sér íslenska spilara með fjölbreyttu úrvali spilakassa (slot games) og borðspila, veglegum bónusum og fríspilum. Árið 2019 spiluðu Íslendingar fyrir 4,5 milljarða króna á tíu vinsælustu erlendu netspilasíðunum. Þetta er hluti af stærri þróun, þar sem yfir helmingur allra veðmála frá Íslandi fer nú fram á erlendum vefsíðum.
Staðreyndin er sú að engin lög banna Íslendingum að spila í erlendum vefspilavítum. Þú finnur spilavíti á netinu fyrir íslenska spilara, sem bjóða upp á viðmót sem þýtt hefur verið yfir á íslensku. Þó að erlendu spilavítin geti ekki sótt um starfsleyfi á Íslandi, geta Íslendingar skráð sig og spilað. Úrval greiðslulausna gerir þeim kleift að taka við greiðslum í íslenskum krónum, ýmist gegnum kreditkort, bankamillifærslur og jafnvel í formi rafmynta (crypto currencies).
Mikilvægt er þó að velja örugg og traust vefspilavíti. Við hjá spilavíti.is ætlumst til að öll spilavítin á netinu sem við mælum með hafi evrópskt starfsleyfi, til dæmis frá Möltu eða Eistlandi. Þá er líka mikilvægt að kynna sér:
- Öryggi greiðslulausna
- Þjónustu á ensku eða norðurlandamálum
- Orðspor spilavítisins meðal spilara
- Hraða á útborgunum vinninga
Hvernig við prófum og dæmum spilavíti
Þegar við veljum bestu spilavítin á netinu fyrir íslenska spilara, leitumst við við að uppfylla ströng gæðaviðmið. Frábær spilavíti á netinu þurfa að bjóða upp á öruggar greiðslulausnir, góða þjónustu og fjölbreytt úrval leikja. Við prófum fjöldan allan af glænýjum spilavítum sem koma á markaðinn til að finna fullkomið spilavíti fyrir þig. Í stuttu máli má brjóta prófunarferlið niður í þessi meginskref:
Skráning
Við skráum okkur hjá hverju spilavíti og punktum hjá okkur hversu auðvelt eða erfitt ferlið er og hve langan tíma það tekur að fá skráningu staðfesta.
Innborgun
Við millifærum peninga inn á spilareikninginn til að meta ferlið, hvaða greiðslumöguleikar eru í boði og hve langan tíma það tekur þar til peningarnir eru komnir inn og hægt er að byrja að spila.
Leikjaúrval
Við prófum þá leiki sem í boði eru, bæði spilakassa (slot machines) og klassíska borðleiki, eins og til dæmis Póker, Blackjack og Rúlettu.
Farsímaviðmót
Við hjá spilavíti.is skiljum mætavel mikilvægi þess að geta spilað í hvaða tæki sem er og helst hvar og hvenær sem er. Þannig að við skoðum notendaviðmótið hjá hverju spilavíti mjög vendilega og hvernig vefurinn skilar sér í farsíma – sumir spilavíti bjóða sitt eigið app og við auðvitað
Öryggi
Við leggjum auðvitað til grundvallar að öryggismál séu í góðu lagi. Spilarar treysta spilavítum bæði fyrir persónuupplýsingum og greiðslukortaupplýsingum, enginn vill að óprúttnir aðilar komist yfir þau gögn og þess vegna skoðum við vel og vandlega hvaða ráðstafanir eru gerðir til að tryggja öryggi viðskiptavina.
Þjónustuver
Ef eitthvað kemur uppá, þá viljum við auðvitað fá aðstoð fljótt og örugglega. Við setjum okkur í samband við þjónustuver hvers spilavítis og metum ýmsa þætti í þeirra þjónustu. Eins göngum við úr skugga um að hægt sé að fá aðstoð á ensku.
Útborgun vinninga
Svo prófum við að sjálfsögðu að taka út peninga af spilareikningi. Þar leggjum við mikið uppúr að peningarnir skili sér hratt og örugglega inn á reikning viðtakanda.
Orðspor
Eins og alls staðar leynist misjafn sauður í mörgu fé. Við pössum okkur að mæla einungis með spilavítum sem hafa gott orðspor. Það er sem betur fer allajafna fljótt að fréttast þegar eitthvað er ekki eins og það á að vera.
Rekstrarleyfi
Enn sem komið er geta spilavíti ekki sótt um leyfi til að starfa á íslenskum markaði. Það þýðir að starfsemi þeirra er á “gráu svæði” en samt sem áður viljum við sjá að þau spilavíti sem við mælum með hafi leyfi til þess að starfa á Evrópskum markaði.
Bónusar í boði
Langflest spilavíti bjóða sínum kúnnum einhverskonar bónusa. En bónusarnir eru misgóðir, við viljum beina okkar lesendum þangað sem þeir fá bestu bónusana. Þá erum við bæði að tala um að fá sem hæsta upphæð í bónus en líka hagstæða skilmála fyrir spilarann.
Í dag er hægt að fá mjög góða bónusa hjá spilavítum á netinu, eins og til dæmis 200% innborgunarbónus. Þá leggur spilarinn inn ákveðna upphæð og spilavítið leggur til 2x þá tölu – þannig að ef greiddar eru inn 100 evrur, þá koma til viðbótar 200 evrur frá spilavítinu og þú byrjar þá með 300 evrur á spilareikningnum.
Svo er allajafna boðið upp á ýmiskonar fríspils (free spin) pakka. Þá fær spilarinn ákveðinn fjölda af fríspilum í spilakössum (slot machines) án þess að þurfa að spila sínum eigin peningum.
Bestu spilavítin bjóða góða bónusa fyrir bæði nýja kúnna sem og spilara sem eru þegar skráðir hjá þeim. Það er mikilvægt að kynna sér veðskilyrði (wagering requirements) áður en stokkið er á bónus. Veðskilyrðin segja til um hversu oft spilari þarf að veðja bónuspeningum áður en hægt er að taka út vinninga.
Við förum betur yfir bónusa og allt sem þeim tengist á síðu um það efnið. Það besta er að það er ekkert sem bannar þér að skrá þig hjá mörgum spilavítum og næla þér þannig í marga bónusa!
Leikir í boði hjá spilavítum á netinu
Þegar kemur að leikjum sem boðið er uppá í spilavítum á netinu er úrvalið gríðarlega mikið. Leikir í spilakössum (slot machines) bjóða líklega uppá mesta úrvalið og fjölbreytni. Mörg fyrirtæki sérhæfa sig í að þróa leiki fyrir spilakassa og það er endalaust hægt að þróa ný þemu og útfærslur. Svo eru auðvitað alltaf að koma ný spilavíti á markað og þá oft með einhverja nýja spilakassa sem gaman er að prófa.
Margir Íslendingar eru slyngir pókerspilarar og póker er líklega vinsælasta borðspilið hjá flestum spilavítum á netinu. Póker er í boði í mörgum útfærslum, Texas Hold’Em og Seven Card Stud eru líkega þær þekktustu og vinsælustu.
Svo er líka hægt að spila Blackjack, Rúllettu og Baccarat og fleiri til auðvitað, en þetta eru þekktustu og vinsælustu leikirnir. Við förum betur í saumana á spilavítisleikjum á síðu sem er alfarið helguð þeim.
Algengar spurningar (FAQ)
18 ára. Spilavíti á netinu sem starfa á Evrópskum markaði eru með 18 ára aldurstakmark og við mælum einvörðungu með spilavítum sem hafa leyfi útgefið fyrir þann markað.
Við mælumst eindregið til þess að fólk velji netspilavíti sem við höfum tekið fyrir og mælum með. En ef þú ert að skoða eitthvað upp á eigin spýtur, þá skaltu ganga úr skugga um að spilavítið hafi Evrópskt starfsleyfi og svo lesa umsagnir notenda til að vera viss um að allt sé í lagi.
Mörg spilavíti bjóða gestum að spila ókeypis demó útfærslur af spilum og það getur verið ágætis leið til að læra leikinn og átta sig á hvort hann hafði til manns. En ef þú vilt vinna peninga, þá þarftu að byrja á að leggja inn á reikninginn þinn – eða skoða bestu bónusana hér á síðunni.
